Nýr skipulags-og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar
20. desember 2018
Bogi Kristinsson Magnusen er nýr skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar. Hann hóf störf þann 1. desember sl.
Bogi hefur sl. 16 ár verið skipulags- og byggingarfulltrúi fyrir sveitarfélögin Dalabyggð, Reykhóla-, Kaldrananes- og Árneshrepp. Bogi er með meistararéttindi í húsasmíði, byggingarfræðingur frá Vitus Bering Horsens í Danmörku og MS.c í Skipulagsfræði frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri.
Bogi er kvæntur Hörpu Helgadóttur og eiga þau tvö uppkomin börn.
Við bjóðum Boga velkominn til starfa.