Nýr félagsmálastjóri Hvalfjarðarsveitar
12. október 2021
Freyja Þöll Smáradóttir er nýr félagsmálastjóri Hvalfjarðarsveitar og hefur hún þegar hafið störf.
Freyja hefur mikla reynslu af störfum í félagsþjónustu og barnavernd. Hún er með MA próf í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands og hefur undanfarin sex ár starfað við félagsþjónustu og barnavernd hjá Borgarbyggð.
Hvalfjarðarsveit býður Freyju Þöll velkomna til starfa.