Nýr aðalbókari
02. september 2022
Guðrún Guðmundsdóttir er nýr aðalbókari Hvalfjarðarsveitar. Guðrún hefur mikla reynslu af störfum aðalbókara og í opinberri stjórnsýslu. Hún er viðskiptafræðingur að mennt með MS gráðu í forystu og stjórnun.
Guðrún hóf störf þann 1. september og býður Hvalfjarðarsveit hana velkomna til starfa.