Fara í efni

Kynningarfundur um niðurstöður mengunareftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga

Umhverfisstofnun boðar til opins kynningafundar um niðurstöður mengunarvarnaeftirlits og umhverfisvöktunar ársins 2023 vegna starfsleyfa Als álvinnslu, Elkem Ísland og Norðuráls á Grundartanga. Fundurinn er árlegur og í samræmi við starfsleyfi iðjuveranna.

Fundurinn fer fram þriðjudaginn 4. júní nk. kl. 16:00 að Miðgarði í Hvalfjarðarsveit.
Fundinum verður einnig streymt.

Dagskrá fundarins:

  • Mengunarvarnaeftirlit Umhverfisstofnunar og niðurstöður eftirlits 2023 – Sigríður Magnúsdóttir
  • Niðurstöður umhverfisvöktunar á Grundartanga – Eva Yngvadóttir
  • Erindi frá Norðurál – Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson
  • Erindi frá Elkem – Sigurjón Svavarsson
  • Umræður


Fundarstjóri: Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir, sviðstjóri á sviði umhverfisgæða, Umhverfisstofnun

Umhverfisvöktun iðnaðarsvæðisins á Grundartanga, niðurstöður 2023
Umhverfisvöktun iðnaðarsvæðisins á Grundartanga 2023, bæklingur