Fara í efni

Narfastaðir - Frístundabyggð - Deiliskipulagsbreyting

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 27. mars 2024, að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Narfastaða í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin nær til lóðanna Háholt 10 og 11. Byggingarreitur á lóðinni Háholt 10 er stækkaður og á lóðinni Háholt 11 er færður um 2m til austurs.

Deiliskipulagsbreytingarnar eru til sýnis á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, að Innrimel 3, Hvalfjarðarsveit
frá og með 17. maí 2024 til og með 28. júní 2024.

Narfastaðir, frístundabyggð, deiliskipulagsbreyting

Skipulagsgögn eru einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins https://www.hvalfjardarsveit.is og í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, www.skipulagsgatt.is.
Kynningarfundur verður auglýstur síðar á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar.

Hverjum þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.
Frestur til að skila inn athugasemdum er 28. júní 2024.

Skila skal inn skriflegum athugasemdum, rafrænt í gegnum Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is eða með bréfpósti á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, stílað á skipulagsfulltrúa, Innrimel 3, 301 Akranesi.

Skipulagsfulltrúi Hvalfjarðarsveitar