Fara í efni

Menningarstefna Vesturlands 2021-2024

Menningarstefna Vesturlands 2021-2024 hefur nú formlega verið gefin út. Að þessu sinni er hún rafræn og má nálgast hana hér. Þá hafa verið frumsýnd stutt kynningarmyndbönd þar sem undirstefna hvers kafla er kynnt, en myndböndin sýna jafnframt hversu fjölbreytt og öflugt menningarstarf er á Vesturlandi.

Menningarstefnan er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Vesturlands. Hún var samþykkt í lok síðasta árs og er í raun endurskoðuð menningarstefna frá árinu 2016. Skipað var sérstakt fagráð skipuð nær öllum sveitarfélaganna á Vesturlandi, auk þess sem fjórir fagaðilar, starfandi í menningartengdum atvinnugreinum í landshlutanum áttu sæti í ráðinu. Fagráðið tók sem áður segir ákvörðun um að endurskoða eldri menningarstefnu en með nýjum áherslum. Lögð væri áhersla á hvernig stefnan myndi þjóna minnihlultahópum á Vesturlandi, t.d. innflytjendum og að áhersla væri lögð á menningartengdar atvinnugreinar í stefnunni. Þá var stefnan mótuð út frá Vesturlandi sem einu menningarsvæði.

Í fagráði menningarstefnu Vesturlands sátu:

Ása Líndal Hinriksdóttir, menningar- og frístundafulltrúi í Hvalfjarðarsveit
Bjarnheiður Jóhannesdóttir, forstöðumaður Eiríksstaða og verkefnastjóri Vínlandsseturs
Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir, miðlunarfræðingur, sögufylgja og sagnaþulur á Snæfellsnesi
Eygló Bára Jónsdóttir, kennari og formaður menningarnefndar Grundarfjarðarbæjar
Heiðar Mar Björnsson, kvikmyndagerðarmaður og framkvæmdastjóri Muninn film
Jóhannes Eyberg, bóndi að Hraunhálsi í Helgafellssveit
Kári Viðarsson, leikari og eigandi Frystiklefans á Rifi
María Neves, starfsmaður atvinnu-, markaðs- og menningarnefndar Borgarbyggðar
Ólafur Páll Gunnarsson, fjölmiðlamaður og formaður menningar- og safnanefndar Akraness
Ragnheiður Valdimarsdóttir, fulltrúi hjá Stykkishólmsbæ og formaður fagráðs Uppbyggingarsjóðs Vesturlands
Sigrún Þormar, starfsmaður Snorrastofu og íbúi tilnefnd af Skorradalshrepp
Sigþóra Óðinsdóttir, myndlistamaður og einn af stofnendum Plan-B Art Festival í Borgarnesi
Þorgrímur Einar Guðbjartsson, bóndi og ferðaþjónustu- og matarfrumkvöðull að Erpsstöðum

Starfsmenn Menningarstefnu Vesturlands voru Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi SSV og Sólveig Ólafsdóttir starfsmaður verkefnisins. Hönnun og útlit stefnunnar var í höndum Muninn Film og Aloha markaðsstofu.

Er öllum sem kom að vinnslu og útgáfu Menningarstefnu Vesturlands 2021-2024 færðar þakkir fyrir vel unnin störf.