Lyngmelur - gatnagerð
08. desember 2021
Framkvæmdir við gatnagerð Lyngmels hófust 15. nóvember síðastliðinn, búið er að grafa fyrir vegstæði og unnið er þessa dagana við fráveitu- og regnvatnslagnir. Það er verktakafyrirtækið Þróttur ehf. sem sér um verkið fyrir Hvalfjarðarsveit, Veitur, Rarik og Mílu.
Lóðir við Lyngmel verða auglýstar á næstu vikum.