Fara í efni

Lögbundin hunda- og kattahreinsun í Hvalfjarðarsveit

 

Föstudaginn 9. nóvember nk. verður lögbundin hunda- og kattahreinsun í Hvalfjarðarsveit.  Hreinsunin fer fram að Skipanesi milli kl. 17:00-19:00.

 

Samkvæmt 15. kafla hollustuháttareglugerðar nr. 941/2002, er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýrið árlega.  Skylt er að ormahreinsa alla hunda og ketti 4 mánaða og eldri, og nýgotnar tíkur.  Skulu 3-4 vikna hvolpar spóluormahreinsaðir sérstaklega samkvæmt leiðbeiningum dýralæknis.

 

Gunnar Gauti Gunnarsson, dýralæknir Borgarfjarðar-og Mýrasýslu, annast hreinsunina.

 

Ormahreinsun hunda er innifalin í leyfisgjaldi hunda í þéttbýli og þurfa þeir sem þegar hafa greitt það gjald, ekki að greiða sérstaklega fyrir hreinsun.  Annars kostar ormahreinsun hunda 2.000-5.000 kr. eftir þyngd dýrsins.

 

Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningu(allt í einni sprautu): Smáveirusótt(Parvo), lifrarbólgu, hótel-hósta og hundafári á 3.000 kr.  Einnig ófrjósemissprautu á 2.500-4.000 kr., örmerkingu hunda og skráning í www.dyraaudkenni.is á 4.500 kr. og Perlutex ófrjósemistöflur á 2.000 kr.

 

Óskráða hunda er hægt að skrá á staðnum.

 

Kattareigendum stendur einnig til boða að nýta þjónustu dýralæknis.  Ormahreinsun fyrir ketti kostar 2.500-4.500 kr. fer eftir þyngd, ófrjósemissprauta 3.000 kr., sprauta gegn kattarfári 3.000 kr og örmerking katta og skráning í www.dyraaudkenni.is á 4.500 kr.

 

Muna eftir að hafa heilsufarsbækur dýranna með.

 

Ath. að greiða þarf með reiðufé.

 

Upplýsingar um hundahald í Hvalfjarðarsveit er að finna á vef Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is

 

                                          Þorvaldur Magnússon, hundaeftirlitsmaður Hvalfjarðarsveitar.

 

                                                         Gunnar Gauti Gunnarsson,dýralæknir.