Fara í efni

Lögbundin hunda- og kattahreinsun í Hvalfjarðarsveit

Föstudaginn 10. nóvember nk. verður lögbundin hunda- og kattahreinsun í Hvalfjarðarsveit. Hreinsunin fer fram að Skipanesi á milli kl. 17:00 – 19:00.

Samkvæmt 15. kafla hollustuháttareglugerðar nr. 941/2002, er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýrið árlega. Skylt er að ormahreinsa alla hunda og ketti 4 mánaða og eldri, og nýgotnar tíkur. Skulu 3-4 vikna hvolpar spóluormahreinsaðir sérstaklega samkvæmt leiðbeiningum dýralæknis.

Gunnar Gauti Gunnarsson, dýralæknir Borgarfjarðar- og Mýrasýslu,  annast hreinsunina.

Ormahreinsun hunda er innifalin í leyfisgjaldi hunda í þéttbýli og þurfa þeir sem þegar hafa greitt það gjald, ekki að greiða sérstaklega fyrir hreinsun. Annars kostar ormahreinsun hunda 2.000-5.000 kr. eftir þyngd dýrsins.

Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningu (allt í einni sprautu): Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótel – hósta og hundafári á 3.000 kr., örmerkingu hunda og skráning í www.dyraaudkenni.is á 4.500 kr. og Perlutex ófrjósemistöflur á 1.500 kr.

Óskráða hunda er hægt að skrá á staðnum.

Kattareigendum stendur einnig til boða að nýta þjónustu dýralæknis. Ormahreinsun fyrir ketti kostar 2.500-4.500 kr. fer eftir þyngd, og Perlutex ófrjósemistöflur á 1.500 kr., sprauta gegn kattarfári 3.000 kr. og örmerking katta og skráning í www.dyraaudkenni.is á 4.500 kr..

Muna eftir að hafa heilsufarsbækur dýranna með.              

Ath. að greiða þarf með reiðufé.

Upplýsingar um hundahald í Hvalfjarðarsveita er að finna á vef Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is    

Þorvaldur Magnússon, hundaeftirlitsmaður Hvalfjarðarsveitar

Gunnar Gauti Gunnarsson,  dýralæknir