Lögbundin hunda- og kattahreinsun í Hvalfjarðarsveit
Föstudaginn 18. nóvember nk. verður lögbundin hunda- og kattahreinsun í Hvalfjarðarsveit. Hreinsunin fer fram að Skipanesi á milli kl. 17:00 – 19:00.
Samkvæmt 15. kafla hollustuháttareglugerðar nr. 941/2002, er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýrið árlega. Skylt er að ormahreinsa alla hunda og ketti 4 mánaða og eldri, og nýgotnar tíkur. Skulu 3-4 vikna hvolpar spóluormahreinsaðir sérstaklega samkvæmt leiðbeiningum dýralæknis.
Gunnar Gauti Gunnarsson, dýralæknir Borgarfjarðar- og Mýrasýslu, annast hreinsunina.
Ormahreinsun hunda er innifalin í leyfisgjaldi hunda í þéttbýli og þurfa þeir sem þegar hafa greitt það gjald, ekki að greiða sérstaklega fyrir hreinsun. Annars kostar ormahreinsun hunda 2.000-5.000 kr. eftir þyngd dýrsins.
Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningu (allt í einni sprautu): Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótel – hósta og hundafári á 3.000 kr. einnig ófrjósemissprautu á 2.500 -4.000 kr., örmerkingu hunda og skráning í www.dyraaudkenni.is á 4.500 kr. og Perlutex ófrjósemistöflur á 2.000 kr.
Óskráða hunda er hægt að skrá á staðnum.
Kattareigendum stendur einnig til boða að nýta þjónustu dýralæknis. Ormahreinsun fyrir ketti kostar 2.500-4.500 kr. fer eftir þyngd, ófrjósemissprauta 3.000 kr., sprauta gegn kattarfári 3.000 kr. og örmerking katta og skráning í www.dyraaudkenni.is á 4.500 kr..
Muna eftir að hafa heilsufarsbækur dýranna með.
Ath. að greiða þarf með reiðufé.
Upplýsingar um hundahald í Hvalfjarðarsveita er að finna á vef Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is
Þorvaldur Magnússon, hundaeftirlitsmaður Hvalfjarðarsveitar
Gunnar Gauti Gunnarsson, dýralæknir