Lóðir í Melahverfi - lausar til umsóknar
Auglýsing um lausar lóðir í Melahverfi, Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit auglýsir eftir umsóknum í lausar byggingarlóðir við Lyngmel í Melahverfi.
Um er að ræða 14 lóðir fyrir; einnar hæðar einbýlishús, parhús og raðhús með samtals 14 íbúðum.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar um lóðirnar og skipulagsskilmála má nálgast á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is og á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, Melahverfi, Hvalfjarðarsveit.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar eða á netfangið bygging@hvalfjardarsveit.is
Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í Hvalfjarðarsveit.
Frestur til að skila inn umsóknum er til 8. febrúar 2022
Einbýlishúsalóðir:
Götuheiti: Hámarks byggingarstærð: *Gatnagerðargjald kr./m2
Lyngmelur nr. 5 350 m2 28.828 kr./m2
Lyngmelur nr. 7 325 m2 28.828 kr./m2
Lyngmelur nr. 9 325 m2 28.828 kr./m2
Lyngmelur nr. 11 325 m2 28.828 kr./m2
Lyngmelur nr. 13 325 m2 28.828 kr./m2
Lyngmelur nr. 15 280 m2 28.828 kr./m2
Parhúsalóðir:
Götuheiti: Hámarks byggingarstærð: *Gatnagerðargjald kr./m2
Lyngmelur nr. 10-12 (2x200) 400 m2 22.457 kr./m2
Lyngmelur nr. 14-16 (2x200) 400 m2 22.457 kr./m2
Raðhúsalóð:
Lyngmelur nr. 2,4,6 og 8 (4x185) 740 m2 22.457 kr./m2
*Gatnagerðargjald er háð byggingarvísitölu og reiknast sem hlutfall af byggingarkostnaði, viðmið frá janúar 2022.
Á kortasjá Hvalfjarðarsveitar má fá nánari upplýsingar um lóðirnar.
Arnar Skjaldarson, byggingarfulltrúi
Melahverfi 2. áfangi, lausar lóðir til úthlutunar við Lyngmel.