Fara í efni

Lóðarúthlutun í nýju hverfi sunnan við Melahverfi í Hvalfjarðarsveit.

Melahverfi 2, íbúðarhúsalóðir við Háamel.

Svæðið sem nú er úthlutað úr, er fyrsti áfangi að nýrri byggð sunnan Melahverfis.

Lóðirnar eru fyrir eftirfarandi byggingargerðir:

·         Einbýlishús á einni hæð, neðan götu: nr. 2, 4, 6 og 8

·         Parhús tveggja hæða, ofan götu: nr. 3, 5, 7, 9, 11 og 13

·         Parhús einni hæð, neðan götu: nr. 10, 12, 14 og 16

·         Fjölbýlishús, 8 íbúðir á tveimur hæðum: nr. 1 (Þegar úthlutuð)

 

Tekið verðu við umsóknum á þar til gerðum umsóknareyðublöðum frá og með 10.04.2017 á skrifstofu sveitarfélagsins að Innrimel 3, 301 Akranes. Umsóknareyðublöð, úthlutunarreglur, deiliskipulag ásamt greinargerð er hægt að nálgast á heimasíða Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is eða á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar.

Umsóknum í þessa fyrstu úthlutun skal skilast fyrir 02.05.2017.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sveitarfélagsins.

Eyðublað-Umsókn um byggingarlóð

Hér að neðan er hægt að skoða gildandi skipulag af svæðinu:

Greinargerð

Skipulagsuppdrættir-Melahverfi 2

Breyting á greinargerð-Melahverfi 2

 

Skúli Þórðarson

Sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar