Fara í efni

Ljósmyndakeppni Hvalfjarðardaga 2024

Ljósmyndin sem bar sigur úr býtum var tekin af Jóhönnu Marín Óskarsdóttur og voru henni afhent vegleg verðlaun, frá Sláturfélagi Suðurlands, af formanni og varaformanni Menningar- og markaðsnefndar.

Hér fyrir neðan má sjá sigurmyndina úr ljósmyndakeppni Hvalfjarðardaga 2024, þar sem þemað var Hvalfjarðarsveit.

Menningar- og markaðsnefnd þakkar öllum þátttakendum fyrir að taka þátt í keppninni og hvetur alla til að halda áfram að fanga fegurð Hvalfjarðarsveitar - þar sem lífið er ljúft!