Fara í efni

Ljósleiðaranotendur í Hvalfjarðarsveit athugið.

Notendur ljósleiðara í Hvalfjarðarsveit sem greiða mánaðargjald til sveitarfélagsins fyrir aðgang að ljósleiðarakerfinu, er bent á að með þeirri greiðslu eru þeir að greiða svokallað „línugjald“ sem þjónustuaðilar innheimtu áður, þegar þjónusta var veitt í gegn um línukerfi þeirra.

Því viljum við benda notendum ljósleiðarans í Hvalfjarðarsveit að athuga hvort enn sé verið að innheimta þetta línugjald hjá þjónustuaðilum og sé svo, þá að hafa samband við þá og krefjast þess að gjaldið verði fellt niður og endurgreitt, ef það hefur verið innheimt fyrir sama tímabil og Hvalfjarðarsveit hefur innheimt þetta gjald.