Litla-Botnsland 1 - Breyting á Aðalskipulagi 2020 - 2032
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 27. nóvember 2024 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Litla-Botnsland 1, L224375, í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fyrirhuguð er uppbygging á hóteli og ferðaþjónustu þar sem áhersla er lögð á náttúruferðamennsku samhliða skógrækt. Gert er ráð fyrir gistingu fyrir allt að 200 gesti á hóteli og minni gestahúsum ásamt veitingarekstri, náttúruböðum, útivist og annarri ferðatengdri þjónustu. Heildar byggingarmagn svæðis verður allt að 5.000 m2 . Unnið er að matstilkynningu til Skipulagsstofnunnar, í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Aðalskipulagsbreyting - Litla - Botnsland
Ofangreind tillaga er auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins og skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is)
frá 30. janúar – 13. mars 2025.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar.
Deildarstjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar