Fara í efni

Líkamsrækt fyrir 60 ára og eldri

Hvalfjarðarsveit hefur fjárfest í líkamsræktartækjum og hefur því ákveðið að bjóða upp á líkamsrækt fyrir íbúa 60 ára og eldri með leiðbeinanda. Æfingarnar verða í líkamsræktarsalnum í íþróttamiðstöðinni Heiðarborg alla þriðjudaga til jóla frá
kl. 11.10 - 11.50.  Eftir æfingu verður hægt að fara í heita pottinn.  Fyrsti tími er 12. nóvember nk. 

Í boði er að kaupa hádegismat í Heiðarskóla þá daga sem líkamsræktin er.
Skrá þarf sig bæði í líkamsrækt og hádegismat  á skrifstofu sveitarfélagsins í síma 433-8500 eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is 

Leiðbeinandi er Emilía Halldórsdóttir, íþróttafræðingur.