Fara í efni

Leikskólinn Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit

Matráður óskast

Matráður óskast til starfa í Skýjaborg frá og með hausti 2016. Um framtíðarstarf er að ræða í 100% stöðu. Við leitum að matráði sem hefur brennandi áhuga á að elda hollan, góðan og næringarríkan mat í samræmi við Manneldismarkmið Lýðheilsustöðvar. Umsækjandi þarf að hafa góða skipulagshæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af starfi í mötuneyti æskileg. Umsóknarfrestur er til 22. ágúst 2016.

Leikskólakennari óskast - ATH. búið er að ráða í stöðu leikskólakennara

Vegna veikinda vantar til starfa leikskólakennara í Skýjaborg, sem er tilbúinn að taka að sér deildarstjórn, frá hausti 2016 fram til 1. febrúar 2017 í 100% stöðu. Umsækjandi þarf að hafa góða skipulagshæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður litið til annarrar menntunar og reynslu.

Störfin henta jafnt körlum sem konum. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt viðkomandi kjarasamningi.

Leikskólinn leggur áherslu á lýðræði og opinn efnivið. Í leikskólanum dvelja um 40 börn á aldrinum 1-6 ára. Í leikskólanum gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu leikskólans við grunnskólasvið skólans og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum.

 

Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist á eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is. Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri Skýjaborgar, Eyrún Jóna Reynisdóttir, í síma 433 8530 / 892 5510.