Fara í efni

Leikskólakennari / leiðbeinandi óskast í hlutastarf

Leikskólakennari / leiðbeinandi óskast til starfa í Skýjaborg

 

Leikskólakennari / leiðbeinandi í leikskóla óskast til starfa í Skýjaborg. Starfshlutfall er 50-62,5%. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

 

Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu leikskólasviðs við grunnskólasvið skólans og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi.

 

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://skoli.hvalfjardarsveit.is.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

 

Að vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara

Að skipuleggja faglegt starf undir stjórn deildarstjóra

Hæfniskröfur:

 

Leyfisbréf leikskólakennara

Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg

Góðir skipulagshæfileikar

Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

Góð íslenskukunnátta

 

 

Um tímabundið starf er að ræða til og með 6. júlí 2018.

 

Ef ekki fæst leikskólakennari verður litið til menntunar og reynslu.

 

Umsóknarfrestur um starfið er til 5. mars næstkomandi.

 

Starfið hentar báðum kynjum.

 

Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Skýjaborgar í síma 433 8530 / 892 5510

 

 

 

Umsókn með ferilskrá sendist á eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is