Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar-Lausar stöður
Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar auglýsir lausar stöður fyrir næsta skólaár. Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar varð til við sameiningu leikskólans Skýjaborgar og grunnskólans Heiðarskóla árið 2011. Skólinn er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu, Heiðarskóli við Leirá við Skarðsheiði og Skýjaborg í íbúðarhverfinu Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan – virðing – metnaður – samvinna. Skólinn er grænfánaskóli og leggur áherslu umhverfismennt og útinám. Unnið er með byrjendalæsi og er skólinn leiðandi í spjaldtölvunotkun í skólastarfi. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1-6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur.
Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu leikskólasviðs við grunnskólasvið skólans og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi.
Í Heiðarskóla gefst sömuleiðis tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni í teymiskennslu með áherslu á spjaldtölvur, umhverfismennt og útinám. Í Heiðarskóla er lagt upp með ábyrgð einstaklingsins á eigin hegðun og námi út frá aðferðum Uppbyggingarstefnunnar.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://skoli.hvalfjardarsveit.is.
Aðstoðarleikskólastjóri / deildarstjóri óskast til starfa í Skýjaborg
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Að sitja í skólastjórn Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar
· Staðgengill skólastjóra Skýjaborgar í hans fjarveru
· Að vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
· Stjórnun og skipulag deildarinnar
· Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfi sem fram fer á deildinni
Hæfniskröfur:
· Leyfisbréf leikskólakennara
· Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
· Góðir skipulagshæfileikar
· Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og samstarfi
· Góð íslenskukunnátta
Starfshlutfall er 100%. Um framtíðarstarf er að ræða.
Ef ekki fæst leikskólakennari verður litið til menntunar og reynslu.
Deildarstjóri óskast til starfa í Skýjaborg
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Að vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
· Stjórnun og skipulag deildarinnar
· Að bera ábyrgð á uppeldi- og menntunarstarfi sem fram fer á deildinni
Hæfniskröfur:
· Leyfisbréf leikskólakennara
· Reynsla af uppeldis- og menntunarstörfum æskileg
· Góðir skipulagshæfileikar
· Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
· Góð íslenskukunnátta
Starfshlutfall er 100%. Um stöðu afleysingar er að ræða til 6. júlí 2018.
Ef ekki fæst leikskólakennari verður litið til menntunar og reynslu.
Leikskólakennarar óskast til starfa í Skýjaborg
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Að vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
· Að skipuleggja faglegt starf undir stjórn deildarstjóra
Hæfniskröfur:
· Leyfisbréf leikskólakennara
· Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
· Góðir skipulagshæfileikar
· Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
· Góð íslenskukunnátta
Starfshlutfall er 100%. Um framtíðarstarf er að ræða.
Ef ekki fæst leikskólakennari verður litið til menntunar og reynslu.
Aðstoðarskólastjóri óskast til starfa í Heiðarskóla
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Að sitja í skólastjórn Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar
· Staðgengill skólastjóra Heiðarskóla í hans fjarveru
· Virk þátttaka í þróun, skipulagi og eflingu skólastarfs
· Fagleg forysta í skólastarfi
· Að vinna samkvæmt starfslýsingu aðstoðarskólastjóra
Hæfniskröfur:
· Leyfisbréf grunnskólakennara
· Reynsla af kennslu í grunnskóla
· Góðir skipulagshæfileikar
· Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og samstarfi
· Góð íslenskukunnátta
Starfshlutfall er 100%. Um framtíðarstarf er að ræða.
Tónmennta- og leiklistarkennari óskast til starfa í Heiðarskóla
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Að vinna að samkvæmt starfslýsingu grunnskólakennara
· Að vinna í teymi list- og verkgreinakennara
Hæfniskröfur:
· Leyfisbréf grunnskólakennara
· Menntun í tónmenntakennslu
· Góðir skipulagshæfileikar
· Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og samstarfi
· Góð íslenskukunnátta
Starfshlutfall er 45%. Um framtíðarstarf er að ræða.
Þroska- og/eða iðjuþjálfi óskast til starfa við leik- og grunnskólasvið
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Að vera ráðgefandi um þroska og nám barna
· Að annast þjálfun barna
· Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa
· Að standa vörð um nám og velferð barna
· Að vinna að gerð einstaklingsnámskrár í samstarfi við sérkennara
Hæfniskröfur:
· Leyfisbréf sem þroska- og/eða iðjuþjálfi
· Reynsla af vinnu með börnum með fötlun æskileg
· Góð samskipta- og skipulagshæfni
· Áhugi á samvinnu og teymiskennslu
Starfshlutfall er 100%, ráðinn inn á kjarasamninga/vinnutíma miðað við leikskóla.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Umsóknarfrestur um störfin er til og með 12. maí 2017.
Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um.
Störfin henta báðum kynjum.
Ráðið er í umrædd störf frá og með 1. ágúst 2017.
Laun samkvæmt viðkomandi kjarasamningum.
Umsókn með starfsferilskrá sendist á eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is (Skýjaborg) eða sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is (Heiðarskóli).
Nánari upplýsingar veita starfandi skólastjórar;
Eyrún Jóna Reynisdóttir Skýjaborg, í síma 433 8530 / 892 5510
Sigríður Lára Guðmundsdóttir Heiðarskóla, í síma 433 8525 / 899 5156.