Fara í efni

Laust starf hjá Hvalfjarðarsveit

Hvalfjarðarsveit óskar eftir að ráða starfsmann í hlutastarf til að annast ræstingar o.fl. í Stjórnsýsluhúsi sveitarfélagsins.

Um er að ræða hlutastarf 1 dag í viku á skrifstofutíma. 

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Æskilegt er að umsækjandi hafi áður unnið við sambærileg störf.

Umsóknareyðublað má nálgast á hér á vef sveitarfélagsins.

Umsóknafrestur er til og með 10. febrúar nk.

Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 433-8500.

Umsóknir, sem skulu vera skriflegar, ber að senda til sveitarstjóra Hvalfjarðarsveitar, Skúla Þórðarsonar, Innrimel 3, Hvalfjarðarsveit, 301 Akranes.

 

Hvalfjarðarsveit 23. janúar 2015
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.