Lausar stöður við Skýjaborg
Leikskólakennari / leiðbeinandi óskast til starfa í 86% hlutastarf frá 2. janúar – 4. júlí 2025 og Matráður óskast til starfa í 50% í janúar.
Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi með allt að 40 börn. Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. Í Skýjaborg er stytting vinnuvikunnar með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku (miðað við 100% vinnu) og er afleysing í húsi fyrir styttingunni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
- Góðir skipulagshæfileikar
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
- Ef ekki fæst leikskólakennari verður litið til menntunar og reynslu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri, Eyrún Jóna Reynisdóttir, í síma 433 8530 og á netfangi. Umsóknarfrestur er til 17. desember nk. og skal umsókn ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.