Lausar stöður leikskólakennara/leiðbeinanda og ræstitæknis við Skýjaborg
Leikskólakennari/leiðbeinandi 46% staða
Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi með allt að 40 börn. Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. Í Skýjaborg er stytting vinnuvikunnar með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku og er afleysing í húsi fyrir styttingunni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
- Góðir skipulagshæfileikar
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
- Ef ekki fást leikskólakennarar verður litið til menntunar og reynslu.
Ræstitæknir
Laus er staða ræstingar við leikskólann Skýjaborg Hvalfjarðarsveit. Um er að ræða um 38% starf (3,05 klst samkvæmt uppmælingu) og fer fram á tímabilinu 16:15 – 19:18 eða eftir samkomulagi, fimm daga vikunnar.
- Reynsla af vinnu við ræstingar æskileg.
- Hreinlæti í fyrirrúmi.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Starfið hentar öllum kynjum.
- Um framtíðarstarf er að ræða.
- Ráðið er í starfið frá lok ágúst.
Nánari upplýsingar um störfin veitir leikskólastjóri, Eyrún Jóna Reynisdóttir, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfangi. Umsóknarfrestur er til 26. júlí nk. og skal umsóknum ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.