Lausar stöður kennara við Heiðarskóla skólaárið 2022 - 2023
Laus störf kennara við Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar fyrir skólaárið 2022-2023
Skólinn er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu, Heiðarskóli við Leirá við Skarðsheiði og Skýjaborg í Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan – virðing – metnaður – samvinna. Skólinn er grænfánaskóli og leggur áherslu umhverfismennt og útinám. Unnið er með byrjendalæsi. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1-6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur.
Heiðarskóli auglýsir eftir metnaðarfullum kennurum sem eru tilbúnir til að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við samstarfsfólk og foreldra.
Bæði er um að ræða fastráðningastöður sem og afleysingu á næsta skólaári sem hér segir:
- Umsjónarkennari - almenn kennsla í teymi á miðstigi.
- Umsjónarkennari - almenn kennsla í teymi á yngsta stigi.
- List- og verkgreinakennarar, kennslugreinar heimilsfræði, textílmennt, myndmennt, smíði og tónmennt.
- Íþróttakennara
Menntunar og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu.
- Reynsla af teymiskennslu og fjölbreyttum kennsluháttum æskileg.
- Hæfni til að skipuleggja nám í fjölbreyttum nemendahópi þar sem allir fá að njóta sín á eigin forsendum.
- Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
- Færni í samvinnu og teymisvinnu.
- Góð íslenskukunnátta.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525. Umsóknarfrestur er til og með 19. maí næstkomandi og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.