Fara í efni

Lausar stöður í Heiðarskóla - tímabundnar 07.02.2025

Vegna tímabundinna forfalla auglýsir Heiðarskóli eftir stuðningsfulltrúum og skólaliða. Leitað er að einstaklingum með góða hæfni í mannlegum samskiptum sem eru reiðubúnir að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við foreldra og samstarfsfólk.

Um er að ræða tvær stöður stuðningsfulltrúa til 19. mars 2025, annars vegar 60% stöðu og hins vegar 78% stöðu og 33 % stöðu skólaliða til 6. júní 2025. Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af vinnu með börnum æskileg
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Reynsla af ræstingu æskileg (skólaliðastaðan).

Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525 eða 896 8158.

Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar nk. og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is.

Öllum umsóknum verður svarað. Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.