Fara í efni

Laus störf í íþróttamiðstöðinni Heiðarborg

Starfsfólk óskast til starfa við íþróttamiðstöðina Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit.

Störfin sem eru laus eru eftirfarandi:
75% staða, vinnutími frá kl. 08:00-14:00 alla virka daga. Staðan er laus. Það er í skoðun að lengja opnunartímann um tvo tíma tvisvar sinnum í viku.
71% staða, vinnutími frá kl. 15:45-21:15 mánudaga til fimmtudaga og laugardaga frá kl. 09:45-15:15. Staðan er laus frá áramótum. Starfið hentar vel með námi. Til greina kemur að tveir aðilar skipti með sér starfinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með íþróttahúsi
  • Öryggisgæsla við sundlaug
  • Aðstoð við nemendur/gesti
  • Þrif
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hafa náð 18 ára aldri
  • Standast hæfnispróf sundstaða
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til 28. október 2024.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ása Líndal Hinriksdóttir, frístunda- og menningarfulltrúi í síma 433-8500 eða á netfanginu fristund@hvalfjardarsveit.is. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsóknir á https://www.hvalfjardarsveit.is/is/stjornsysla/eydublod/umsokn-um-atvinnu.
Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf. Störfin henta öllum kynjum.