Fara í efni

Laus staða stuðningsfulltrúa/skólaliða í Heiðarskóla

Heiðarskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa/skólaliða í unglingastigsteymi skólans. Leitað er að einstaklingi með góða hæfni í mannlegum samskiptum sem er reiðubúinn að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við foreldra og samstarfsfólk. Um er að ræða 94% stöðu þar af 71% í stuðningi frá kl. 8:00 – 13:30 og 25% í ræstingu frá kl. 13:30 – 15:30 eða eftir samkomulagi. Um ótímabundna ráðningu er að ræða.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af vinnu með börnum æskileg
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Reynsla af vinnu við ræstingar æskileg

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525 eða 896 8158.
Umsóknarfrestur er til og með 3. október n.k. og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is. Öllum umsóknum verður svarað. Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.