Fara í efni

Landeigendur sjávarjarða - kröfulýsingarfrestur framlengdur

Óbyggðanefnd hefur framlengt kröfulýsingarfrest landeigenda á svæði 12 (eyjar og sker) til
2. desember 2024.
Það er gert í ljósi upplýsinga frá lögmönnum ríkisins um að von sé á endurskoðuðum kröfum ríkisins um mánaðamótin ágúst–september 2024.

Tilkynning verður send út um endurskoðaða kröfugerð þegar hún liggur fyrir, auk þess sem hún verður birt á vefsíðu óbyggðanefndar.
Á vefsíðunni er einnig að finna almennar upplýsingar um málsmeðferðina.

Eldri frétt um málið frá 29. febrúar 2024

Vakin er athygli landeigenda sjávarjarða í Hvalfjarðarsveit á að birtar hafa verið kröfur fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins um þjóðlendur á svæði 12 sem nefnist „eyjar og sker“. Kröfurnar hefur ráðherra afhent óbyggðanefnd sem nú kallar eftir kröfum þeirra sem kunna að eiga öndverðra hagsmuna að gæta og skal kröfum lýst skriflega í síðasta lagi 15. maí 2024 fyrir Óbyggðanefnd, Borgartúni 29, 105 Reykjavík, postur@obyggdanefnd.is

Íbúar og jarðaeigendur eru hvattir til að sýna aðgæslu í þessum efnum og koma á framfæri athugasemdum og ábendingum fyrir 15. maí nk. þar sem að öðrum kosti er hætta á að eignaréttur glatist á hólmum og skerjum sem mögulegt er að fylgi jörðum. Í Hvalfjarðarsveit snertir kröfulýsingin fjölda jarða, m.a. í Grunnafirði, Borgarfirði og við Hvalfjörð.

Nánari upplýsingar um kröfugerðina ásamt fleiri nytsamlegum upplýsingum má finna á heimasíðu Óbyggðanefndar, þar sem að auki eru nánari leiðbeiningar um málsmeðferð.