Kynningarfundur vegna starfsleyfa Norðuráls, Elkem Ísland og Als álvinnslu
21. maí 2021
Í samræmi við ákvæði starfsleyfa iðjuveranna á Grundartanga, Norðuráls, Elkem Ísland og Als álvinnslu, boðar Umhverfisstofnun til opins kynningarfundar um niðurstöður mengunareftirlits og umhverfisvöktunar fimmtudaginn 27. maí kl. 14:00.
Fundurinn verður í fjarfundarsniði þetta árið og streymt í gegnum Teams forritið. Hlekkur á fundinn verður kynntur samdægurs á vef og Facebooksíðu stofnunarinnar.
Dagskrá fundar
Fundarstjóri: Skúli Þórðarson
- Niðurstöður eftirlits 2020 - Halla Einarsdóttir
- Niðurstöður Umhverfissvöktunar á Grundartanga 2020 - Eva Yngvadóttir
Tengill á fundarboðið