Kynningarfundur um niðurstöður mengunareftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga 14. júní 2022
14. júní 2022
Í samræmi við ákvæði starfsleyfa Norðuráls, Elkem Ísland og Als álvinnslu, boðar Umhverfisstofnun til opins kynningarfundar um niðurstöður mengunareftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga þriðjudaginn 14. júní nk. að Miðgarði, Hvalfjarðarsveit kl. 16:00. Fundinum verður einnig streymt.
Hlekkur á streymi birtist á vef ust.is að morgni 14. júní.
Dagskrá fundarins:
- Mengunareftirlit Umhverfisstofnunar og niðurstöður eftirlits 2021– Margrét Helga Guðmundsdóttir
- Niðurstöður Umhverfisvöktunar á Grundartanga 2021 – Eva Yngvadóttir
- Hermann Þórðarsson efnaverkfræðingur flytur erindi
- Bríet Ósk Magnúsdóttir frá Norðuráli flytur erindi
- Sigurjón Svavarsson frá Elkem flytur erindi
- Umræður
Fundarstjóri: Elva Rakel Jónsdóttir, sviðsstjóri á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis.
Skýrsla: Umhverfisvöktun á Grundartanga 2021
Gögn sem tengjast eftirlitum fyrirtækjanna: