Kynning á matsáætlun Aurora fiskeldi vegna landeldi á laxi á Grundartanga
Aurora fiskeldi og EFLA munu halda kynningarfund á Hótel Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit þriðjudaginn 4. febrúar nk. kl. 20:00.
Aurora fiskeldi ehf. áformar að byggja landeldistöð fyrir lax á Grundartanga, Hvalfjarðarsveit. Fyrirhuguð framleiðsla er um 28.000 tonn á ári. Framkvæmdaraðili áformar að stöðin verði byggð upp í þremur áföngum en áætlað er að uppbygging hvers áfanga taki tvö ár. Lífmassi verður aukinn línulega á framkvæmdatímanum. Sjó verður dælt beint inn í stöðina úr Hvalfirði en áætluð vatnsþörf er um 27,0 m3 /sek og gert er ráð fyrir um 75% endurnýtingu á sjóvatni. Áætluð ferskvatnsþörf er um 7,2 l/s en gert er ráð fyrir 99% endurnýtingu á ferskvatnshluta framleiðslunnar.
Kynning á matsáætlun er hluti af umhverfismatsferli sem er í vinnslu og mikivægur liður í að hagaðilar og almenningur hafi vettvang til að kynna sér framkvæmdina og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Hér má sjá hlekk á matsáætlunina Skipulagsgáttin
Dagskrá:
1. Aðstandendur félagsins munu kynna framkvæmdina.
2. EFLA mun kynna matsáætlun framkvæmdarinnar og helstu áherslur í komandi umhverfismati.
3. Spurningar og svör.
Almenningur og hagaðilar eru hvattir til að mæta.
Aurora fiskeldi ehf.