Kvenfélagið Lilja færir félagsmiðstöðinni 301, gjöf
04. apríl 2014
Kvenfélagið Lilja í Hvalfjarðarsveit afhenti þann 24. mars sl. félagsmiðstöðinni 301, hátalarastöð fyrir iPod tónlistarspilara. Sigríður Kristjánsdóttir afhenti gjöfina og veitti Vigdís Erla Sigmundsdóttir formaður nemendaráðs Heiðarskóla gjöfinni viðtöku. Þessi glæsilega gjöf mun koma að mjög góðum notum fyrir félagsmiðstöðina og er kvenfélagskonum færðar bestu þakkir.