Fara í efni

Kjörfundur í Hvalfjarðarsveit

Kjörfundur í Hvalfjarðarsveit vegna Alþingiskosninga laugardaginn 30. nóvember 2024.

Kjörstaður er í Stjórnsýsluhúsinu við Innrimel 3 í Melahverfi.

Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 21:00.

Kjósendur eru hvattir til að koma snemma á kjörstað.

Kjósendum ber að hafa persónuskilríki meðferðis.

Kjósandi á rétt til aðstoðar við atkvæðagreiðsluna og skal aðstoð veitt af þeim úr kjörstjórn sem kjósandi tilnefnir eða aðstoðarmanni sem fylgir kjósanda á kjörstað. Aðstoðarmaður má ekki vera frambjóðandi í kosningum og ekki heldur maki, barn, systkini eða foreldri frambjóðanda. Þá er aðstoðarmanni óheimilt að gerast aðstoðarmaður fleiri en þriggja kjósenda við sömu kosningar.

Kjörskrá fyrir Hvalfjarðarsveit vegna Alþingiskosninga liggur frammi til kjördags á opnunartíma skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, stjórnsýsluhúsinu, Innrimel 3, Melahverfi. Kjósendur geta jafnframt séð á heimasíðu Þjóðskrár hvar þeir eru á kjörskrá.

Upplýsingar um Alþingiskosningar 2024 er að finna á heimasíðu landskjörstjórnar.

Kjörstjórn