Jólatrjáasala í Álfholtsskógi 2024
Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Skilmannahrepps í Álfholtsskógi verður helgina 14. og 15. desember og laugardaginn 21. desember frá kl. 11:30 – 15:30 alla dagana.
Jólatrjáasalan er fjáröflunarstarfsemi félagsins til að viðhalda skóginum og bæta við hann, en hann er nú „Opinn Skógur“ til útivistar allan ársins hring. Fimm stór jólatré úr skóginum hafa verið sett upp í Akranesbæ að vanda og eitt í Hvalfjarðarsveit.
Trén eru einkum Sitkagreni og Stafafura og um þessi jól ætlum við einnig að selja falleg tré úr skógarlundi okkar í Brynjudal eins og við gerðum í fyrra.
Verðskrá:
- 1m 7.000 kr.
1 – 1,5 m 9.000 kr.
1,5 – 2 m 13.000 kr.
2 – 2,5 m 16.000 kr.
Einnig til sölu tröpputré á kr. 4000 og 6000 og grenigreinar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Gott að hafa sög með sér.
Skógarmenn leiðbeina á svæðinu og eftir skógarhöggið er boðið uppá kaffi/kakó og piparkökur.
Öllum er velkomið að gerast félagar í skógræktarfélaginu. Árgjald kr. 3000.