Í morgun var kveikt á jólatrénu við Stjórnsýsluhúsið. Leikskólabörn af Skýjaborg komu í heimsókn, sungið og dansað var í kringum jólatréð.
Að því loknu var þeim boðið í heimsókn í Stjórnsýsluhúsið þar sem sveitarstjóri bauð upp á mandarínur.