Fara í efni

Jólatónleikar - Sveitin á milli stranda

Á morgun, fimmtudag, ætlum við í Sveitinni milli stranda að halda jólatónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Á efnisskránni verða falleg jólalög úr ýmsum áttum, bæði gömul og ný. Með okkur á tónleikunum verða ungar og hæfileikaríkar söngkonur héðan úr sveitinni. 
Við ætlum að eiga notalega og fallega kvöldstund saman með ljúfri tónlist í kirkjunni okkar. 

Staður: Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd
stund: 18. desember kl. 20:30

Aðgangur verður ókeypis en tekið verður við frjálsum framlögum frá þeim sem það kjósa. :)

Við vonum að við eigum eftir að njóta stundarinnar með sem flestum, endilega látið orðið berast sem víðast!! 

Hlýjar kveðjur,

Ásta Marý, Heiðmar og Heimir
Árný Stefanía, Ester Þóra, Ástdís Birta, Hrönn og Kristel.