Íþrótta- og tómstundastyrkur
30. desember 2019
Frestur til að skila inn umsóknum vegna endurgreiðslu á Íþrótta- og tómstundastyrk vegna ársins 2019 er til 25. janúar 2020.
Styrkur til íþrótta-og tómstundaiðkunar árið 2019 er kr. 60.000 og er fyrir börn og ungmenni allt að 18 ára aldri með lögheimili í sveitarfélaginu.
Hægt er að senda rafræna umsókn ásamt kvittunum fyrir greiðslu, í tölvupósti á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is eða koma með á skrifstofu sveitarfélagsins.
Reglur um Íþrótta-og tómstundastyrki Hvalfjarðarsveitar má sjá hér