Íþrótta- og tómstundastyrkur
18. desember 2019
Viljum minna á Íþrótta-og tómstundastyrk Hvalfjarðarsveitar fyrir börn og ungmenni allt að 18 ára aldri með lögheimili í sveitarfélaginu.
Styrkur til íþrótta-og tómstundaiðkunar árið 2019 er kr. 60.000.
Einnig er hægt að sækja um styrk til keppnisferða og æfingaferða erlendis.
Hægt er að senda rafræna umsókn ásamt kvittunum fyrir greiðslu, í tölvupósti á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is eða koma með á skrifstofu sveitarfélagsins.
Hægt er að senda rafræna umsókn ásamt fylgigögnum vegna ferða erlendis, eða til frístunda- og menningarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar, fristund@hvalfjardarsveit.is
Reglur um Íþrótta-og tómstundastyrki Hvalfjarðarsveitar má sjá hér