Í búaþing, stefnumótun í íþrótta- og frístundamálum í Hvalfjarðarsveit
Fræðslu- og skólanefnd boðar til íbúaþings vegna stefnumótunarvinnu í íþrótta-
og frístundamálum í Hvalfjarðarsveit, laugardaginn 7. mars 2015
kl. 10.30-14.00 í Heiðarskóla. Húsið opnar kl. 10.15.
Boðið verður upp á súpu og brauð í hádeginu.
Tilgangur íbúaþingsins er að fá fram sjónarmið og hugmyndir íbúa varðandi íþrótta- og frístundamál í sveitarfélaginu en unnið er að stefnumótun í málaflokknum.
Á íbúaþinginu munum við m.a. leitast við að svara
spurningum sem þessum:
• Hvernig vilt þú að starfsemi vinnuskólans sé?
• Vilt þú að sveitarfélagið reki frístundaheimili fyrir yngsta stig grunnskólans, eftir að hefðbundnum skólatíma lýkur?
• Hverjar eiga áherslurnar að vera í starfsemi félagsmiðstöðvar unglinga?
• Hvernig eflum við þátttöku barna og unglinga í íþróttastarfi?
• Eigum við að reka félagsmiðstöð í sveitarfélaginu – sem er öllum opin óháð aldri?
• Hvernig eflum við almenningsíþróttir í sveitarfélaginu?
Allir íbúar eru hvattir til að koma og vera með í því að móta stefnu sveitarfélagsins til frambúðar og leggja þannig sitt af mörkum til þess að byggja betra samfélag
Fræðslu- og skólanefnd.