Fara í efni

Hvalfjarðarsveit styrkir Hollvinasamtök HVE

Í dag þann 15. janúar  afhenti Skúli Þórðarson, sveitarstjóri Steinunni Sigurðardóttur, formanni stjórnar Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands styrk frá Hvalfjarðarsveit að fjárhæð kr. 1.000.000-. Mun styrkur Hvalfjarðarsveitar renna í fjársöfnun hollvinasamtakanna til kaupa á sneiðmyndatæki sem afhent verður Heilbrigðisstofnun Vesturlands til eignar.

Meðfylgjandi mynd var tekin er fjárstyrkur Hvalfjarðarsveitar var afhentur þann 15. janúar 2015. Á myndinni eru Björgvin Helgason, oddviti, Steinunn Sigurðardóttir, formaður Hollvinasamtaka HVE, Skúli Þórðarson, sveitarstjóri og Kristjana Helga Ólafsdóttir, fjármálastjóri.