Fara í efni

Hvalfjarðardagar 2016

Langar þig að taka þátt í skemmtilegri helgi í Hvalfjarðarsveit? Ertu með góða hugmynd? 

Eitthvað áhugavert til að sýna? Langar þig að bjóða fólki heim? Vilt þú eiga þátt í að gera 

Hvalfjarðardaga 2016 að áhugaverðum viðburð?

Sumarið er komið og því ekki seinna vænna en að hefja skipulagningu Hvalfjarðardaga. 

Óskað er eftir samstarfi við einstaklinga, félagasamtök og fyrirtæki í Hvalfjarðarsveit fyrir 

sumarhátíðina Hvalfjarðardagar, sem haldin verður dagana 26. - 28. ágúst. Með ykkar 

samstarfi er hægt að halda áfram að bjóða upp á fjölbreytta viðburði sem bæði íbúar og 

gestir hafa áhuga á að sækja. 

Ef þú lumar á góðri hugmynd eða hefur áhuga á að vera með viðburð þá hvetjum við þig 

til þess að hafa samband fyrir 30. júlí í síma 846-0162 (Guðný) eða að senda póst á 

netfangið hvalfjardardagar@hvalfjardarsveit.is

Hafir þú ekki aðgang að húsnæði til þess að hýsa viðburði eða sýningar en langar 

jafnframt að taka þátt þá ert þú eindregið hvattur/hvött til að hafa samband.