Fara í efni

Hvalfjarðardagar 2015 - Dagskrá

Hvalfjarðardagar verða haldnir í Hvalfjarðarsveit helgina 28.- 30.ágúst. Fjölbreytt dagskrá í boði um alla sveit !

D A G S K R Á

 

Föstudagur 28. ágúst

 

Kl. 11.00 – 17.00: Hernámssetur að Hlöðum. 2 fyrir 1 inn á safnið og glaðningur fyrir börn. Kaffihúsið opið.

Kl. 12.00: Ljósmyndakeppni hefst og stendur yfir á Hvalfjarðardögum. Þema keppninnar er umhverfi og náttúra í Hvalfjarðarsveit. Nánari upplýsingar um reglur og skilmála um þátttöku í keppninni eru væntanlegar ásamt upplýsingum um innsendingarsíðu.
Verðlaun í boði fyrir vinningsmyndina. Keppni lýkur sunnudaginn 30. ágúst kl. 23.00.

Kl. 17.00: Hlaðir. Framsaga frá Safnahúsi Borgarfjarðar. Guðrún Jónsdóttir og Þóra Elfa Björnsson fjalla um sýninguna Gleym þeim ei, sem sett var upp í Safnahúsi sl. vor, og segja frá Helgu Pétursdóttur frá Draghálsi, sem einnig bjó í Litla Botni, Geitarbergi og í Grafardal. Hún ól átta börn sem öll voru leikin í íslenskri tungu og skáldmælt og má þar nefna tvö þeirra, Halldóru B. Björnsson og Sveinbjörn Beinteinsson. Aðgangur ókeypis. Kaffisala á staðnum.

Kl. 18.00 – 21.00: Sveitagrill í Fannahlíð. Ungmenna- og íþróttafélag Hvalfjarðarsveitar stendur fyrir leikjum, grilli og trúbador stemmningu. Allir velkomnir með sitt á grillið.

 

Laugardagur 29. ágúst

 

Kl. 09.00: Hvalfjarðarhlaup. Þrjár vegalengdir eru í boði: 5 km, 7 km og 14 km. Mæting við sundlaugina að Hlöðum kl. 09.00, rútuferðir verða að rásmörkum og fyrsta vegalengd ræst kl. 10.00. Verðlaun fyrir fyrsta sæti karla og kvenna í þremur aldursflokkum. Þátttökugjald er 2.500 kr. og skráning fer fram á www.hlaup.is Nánari upplýsingar um hlaupið má finna á eftirfarandi síðu:
http://hlaup.is/displayer.asp…

Kl. 10.00 – 18.00: Sundlaugin að Hlöðum. Frítt í sund.

Kl. 10.30: Bjarteyjarsandur. Morgunstund með dýrum þar sem fjölskyldum er boðið að taka þátt í morgunverkum. Að lokinni dýraferð verður kynning á teikningum listakonunnar Juliu Rigby sem dvaldi á Bjarteyjarsandi í sumar og teiknaði dýrin á bænum.

Kl. 11.00: Helgusund í samstarfi við Sjóbaðsfélag Akraness. Sundið er á söguslóðum Harðar sögu og Hólmverja þar sem Helga Haraldsdóttir synti úr Geirshólma og í land í Helguvík. Þátttökugjald er 2.000 kr. og fer skráning fram á hvalfjardardagar@hvalfjardarsveit.is
Af öryggisástæðum er hámarksfjöldi þátttakenda 25 manns.

Kl. 11.00 – 18.00: Handverkssýning. Skraddaralýs, bútasaumsfélag kvenna í Hvalfjarðarsveit, verða með sýningu og sölu á verkum sínum í Stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3.

Kl. 12.00: Ferstikluskáli. Ókeypis pylsur og ís fyrir alla á meðan birgðir endast!

Kl. 12.00 – 17.00: Þórisstaðir. Stóri sveitamarkaðurinn, fótboltagolf og dráttarvélasýning. Á milli kl. 14 – 16 mun partýljón írskra daga, Marinó Rafn, halda uppi stuðinu með spili og söng.

Kl. 12.30: Fjölskyldujóga. Sigríður Lára Haraldsdóttir jógakennari býður í fjölskyldujógatíma á Þórisstöðum. Mæting hjá Kaffi Koti.

Kl. 12.30: Síðsumartónar og sveitarómanz. Súputónleikar í Hlöðunni á Bjarteyjarsandi. María Jónsdóttir söngkona og Óskar Magnússon gítarleikari flytja ástarljóð ýmissa tónskálda frá liðnum tímum til okkar daga. Framreidd verður ljúffeng uppskerusúpa úr lífrænu hráefni ásamt heimabökuðu brauði.

Kl. 13.00 – 17.00: Bugavirkjun að Eystri-Leirárgörðum. Magnús Hannesson, einn af eigendum lítillar vatnsaflsvirkjunar, býður upp á opið hús og sýnir virkjunina.

Kl. 14.00: Álfholtsskógur. Ljóðalestur frá Meðgönguljóðum. Höfundar sem lesa úr verkum sínum eru Valgerður Þóroddsdóttir, Ásta Fanney Sigurðardóttir, Kristín Svava Tómasdóttir, Kristófer Páll Viðarsson, Sigurbjörg Friðriksdóttir og Elías Knörr. Mæting við félagsheimilið Fannahlíð kl. 14.00 og gengið að Fuglaþúfu.

Kl. 14.00 – 16.00: Hestbak. Hestamannafélagið Dreyri býður börnum á hestbak á Þórisstöðum í Svínadal.

Kl. 14.00 – 18.00: Kökuhlaðborð á Laxárbakka.

Kl. 21.00: Þórisstaðir. Pub quiz og trúbador í Kaffi Koti. Aðgangur ókeypis. Veitingasalan verður opin.

 

Sunnudagur 30. ágúst

 

Kl. 10.00 – 18.00: Sundlaugin að Hlöðum. Frítt í sund.

Kl. 11.00 – 17.00: Hernámssetur að Hlöðum. 2 fyrir 1 inn á safnið og glaðningur fyrir börn. Kaffihúsið opið.

Kl. 11.00: Jóga í Álfholtsskógi. Sigríður Lára Haraldsdóttir jógakennari býður upp á útijóga í skógræktinni hjá Fannahlíð. Mæting hjá skógræktarhúsinu (Furuhlíð). Æskilegt er að koma með teppi og púða.

Kl. 13.00 – 16.00: Glöggt er gests augað. Opnun sýningarinnar í Stjórnsýsluhúsinu að Innrimel 3. Kl. 13.00 munu nemendur umhverfisskipulagsbrautar við Landbúnaðarháskóla Íslands kynna verkefni sem gerð voru í landslagsgreiningu þar sem viðfangsefnið var Hvalfjarðarsveit. Verkin fjalla um núverandi staðhætti og sérstöðu svæðisins og framtíðarsviðsmyndir af völdum svæðum.

Kl. 13.00: Gönguferð að Glym, hæsta fossi Íslands í botni Hvalfjarðar. Gengið að tveimur útsýnisstöðum austan gljúfursins og á köflum er farið um nokkuð brattar hlíðar. Æskilegur útbúnaður er góðir gönguskór. Lagt er af stað frá Stóra-Botnshliði og tekur gangan um 2,5-3 tíma. Leiðangursstjóri er Kristinn Zimsen, landeigandi í Stóra-Botni.

Kl. 14.00 – 17.00: Vatnaskógur býður heim. Bátalán, hoppukastalar og gönguferð um staðinn með leiðsögn. Kaffisala til styrktar byggingu á nýjum svefn- og þjónustuskála. Kl. 14.30 og 16.00 verður stuttmyndin „Áfram að markinu“ sýnd í sal Gamla skála, sem gerð var í tilefni 90 ára afmæli Vatnaskógar.

Kl. 15.00 – 17.00: Kökuhlaðborð í Ferstikluskála.

Kl. 16.30: Hallgrímskirkja í Saurbæ. Örlagasaga Hallgríms Péturssonar og Guðríðar Símonardóttur í flutningi Steinunnar Jóhannesdóttur, rithöfundar og leikkonu. Aðgangseyrir er enginn og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Kl. 23.00: Ljósmyndakeppni lýkur.

Hlökkum til að sjá ykkur !

 

 

 

Frétt um Hvalfjarðardaga, sem var birt í Skessuhorni !