Fara í efni

Hvalfjarðardagar 2015

Lumar þú á góðri hugmynd? Jafnvel skemmtilegum hlutum til að sýna? Hefur þú tök á að bjóða fólki heim? Langar þig að taka þátt í skemmtilegum viðburði?

Óskað er eftir samstarfi við einstaklinga, félagasamtök og fyrirtæki í Hvalfjarðarsveit fyrir sumarhátíðina Hvalfjarðardagar, sem haldin verður dagana 28. - 30. ágúst.
Stefnt er að því að sveitin okkar verði iðandi af mannlífi og að fjölbreyttir viðburðir verði í boði  þessa daga. Til þess að svo geti orðið þurfum við á aðstoð íbúanna að halda.

Ef þú lumar á góðri hugmynd eða hefur áhuga á að vera með viðburð þá hvetjum við þig til þess að hafa samband fyrir 30. júlí í síma 825 6337 (Heiður) eða að senda póst á netfangið hvalfjardardagar@hvalfjardarsveit.is

Hafir þú ekki aðgang að húsnæði til þess að hýsa viðburði eða sýningar en langar jafnframt að taka þátt þá ert þú eindregið hvattur/hvött til að hafa samband.