Hvaða þjónusta skiptir þig máli? Þjónustukönnun Byggðastofnunar
11. júní 2024
- Hvaða þjónustu nota íbúar og hvert fara þeir til að sækja þá þjónustu?
- Hvaða þjónustu þarf helst að bæta við eða efla?
- Hvaða þjónustu óttast íbúar helst að missa úr heimabyggð?
Nú fer fram könnun sem Maskína framkvæmir fyrir hönd Byggðastofnunar meðal íbúa um land allt (utan höfuðborgarsvæðis) vegna rannsókna á þjónustusókn og væntingum til breytinga á þjónustu. Taktu þátt í Þjónustukönnun Byggðastofnunar, þín þátttaka er mikilvæg!
Smelltu hér til að taka þátt: www.maskina.is/byggdastofnun