Húsnæðisáætlun Hvalfjarðarsveitar 2025
Húsnæðisáætlun Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2025 var samþykkt á sveitarstjórnarfundi þann 22. janúar sl. Ýmsar gagnlegar upplýsingar koma fram í áætluninni m.a. um þróun mannfjölda/ fjölgun íbúa á spátímabilinu eða fram til ársins 2034. Í lok árs 2024 voru 800 einstaklingar skráðir með lögheimili í Hvalfjarðarsveit. Fjölgunin nemur um 5,3 % frá fyrra ári 2023. Af þessum 800 íbúum voru 47 ótilgreindir og af ótilgreindum voru 34 með erlent ríkisfang.
Upplýsingar um áætlaða aldurssamsetningu íbúa sveitarfélagsins á spátímabilinu koma einnig fram, t.d. ef áætlað er að íbúar séu að eldast/yngjast, sem endurspeglar þörf fyrir þjónustu svo sem leikskóla og grunnskóla, þörf fyrir nýjar íbúðarlóðir og nýtt íbúðarhúsnæði o.s.frv.
Árleg íbúðaþörf segir svo til um hversu margar íbúðir þarf að byggja á hverju ári til þess að uppfylla áætlaða íbúðaþörf. Skýrslan fjallar jafnframt um áætlaðar lóðaúthlutanir sem taka mið af lóðavali sveitarfélagsins, þ.e. fjölda lóða í boði og áætlaða íbúðaruppbyggingu á spátímabilinu o.fl.
Markmið sveitarfélagsins varðandi íbúðauppbyggingu er að halda áfram og ljúka uppbyggingu þeirra svæða sem þegar hafa verið skipulögð sem íbúðasvæði og leggja áherslu á frekari uppbyggingu svo sem í Melahverfi, að skipulag húsnæðis sé í tengslum við innviði sem til staðar eru í sveitarfélaginu t.d. skóla, leikskóla, íþróttamannvirki, sveitarstjórnarskrifstofu, í þeim tilgangi m.a. að laða að fjölskyldufólk. Nýtt íbúðarhverfi hefur verið deiliskipulagt sem kallast Melahverfi III og mun gatnagerð þess hverfis hefjast á árinu 2025 og í framhaldi verður lóðum úthlutað, vonandi seinni hluta ársins 2025, en í Melahverfi III er gert ráð fyrir fjölbreyttu úrvali lóða fyrir einbýlis-, par- og raðhús en gert er ráð fyrir að áfangaskipta uppbyggingu svæðisins.
Nýja íbúðasvæðið, Melahverfi III, er um 8,2 ha að stærð, nýtt 70 íbúða svæði þar sem gert er ráð fyrir 12 lóðum fyrir einbýlishús, 13 lóðum undir parhús eða samtals 26 íbúðum, 8 lóðum undir fjögurra íbúða raðhús, samtals 32 íbúðum. Svæðið skiptist upp í tvær götur og hafa þær hlotið heitið Urðarmelur og Holtamelur. Í miðju Melahverfi er opið svæði / leiksvæði, Vinavöllur, ásamt því að um svæðið eru göngu- og hjólreiðastígar sem ná til allra átta. Gert verður ráð fyrir nýrri vegtengingu við Þjóðveg 1, Vesturlandsveg, sem mun bæta aðgengi að svæðinu til hins betra. Þá er í undirbúningi að byggja nýjan þriggja deilda leikskóla í Melahverfi. Nýtt íþróttahús er í byggingu um þessar mundir við Heiðarskóla/Heiðarborg. Mikil uppbygging íbúðarhúsnæðis hefur verið í Krosslandi á undanförnum árum og eru einungis 6 lóðir óbyggðar þar en allar lóðir í Krosslandi eru í einkaeigu. Í Melahverfi II, nánar tiltekið í Háamel og Lyngmel eru um 5 lóðir óbyggðar.
Í skýrslunni kemur fram að atvinnuleysi sé almennt mjög lítið í Hvalfjarðarsveit og ýmis sóknarfæri séu t.d. í greinum tengdum ferðaþjónustu en verslunar- og þjónustusvæði / afþreyingar- og ferðaþjónustusvæði fara sífellt vaxandi auk þess sem ýmis sóknarfæri eru í tengslum við atvinnuuppbyggingu á Grundartanga þar sem finna má fjölbreytt úrval atvinnuhúsnæðis og atvinnutækifæra í sveitarfélaginu.
Hvalfjarðarsveit er 481 km2, með blómlegan landbúnað og öflugt iðnaðar- og athafnasvæði á Grundartanga auk þess sem tveir þéttbýlisstaðir eru í Hvalfjarðarsveit, þ.e. Melahverfi og Krossland en Grundartangi, sem er stærsta atvinnusvæðið, er mitt á milli þessara tveggja íbúðarsvæða. Við skipulagsvinnu er aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 haft að leiðarljósi en þar kemur m.a. fram að áfram verði stuðlað að öflugum landbúnaði, áframhaldandi fjölbreyttri iðnaðarstarfsemi og fjölbreyttum atvinnutækifærum.
Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun gerði talningu á íbúðum í byggingu í Hvalfjarðarsveit í september árið 2024. Á þeim tíma voru 57 íbúðir í byggingu í Hvalfjarðarsveit.
Forsíðumyndin á Húsnæðisáætlun Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2025 er af Melahverfi, séð yfir Grunnafjörð í vesturátt. Í forgrunni myndarinnar eru nýjustu göturnar sem hafa verið í uppbyggingu sl. ár. Í götunni Háamel hófst bygging íbúðarhúsnæðis á árinu 2019 og er ein lóð laus til umsóknar í þeirri götu. Í götunni Lyngmel hófst bygging íbúðarhúsnæðis á árinu 2023 og eru fjórar lóðir lausar til umsóknar í þeirri götu.
Auk þessa lóða eru eins og áður sagði í undirbúningi uppbygging nýs íbúðarhverfis fyrir 70 íbúðir og er áætlað að framkvæmdir við fyrstu götuna þar hefjist á árinu 2025.