Fara í efni

Hundahreinsun í Hvalfjarðarsveit

Fimmtudaginn 13. nóvember nk. verður lögbundin hundahreinsun í Hvalfjarðarsveit. Hreinsunin fer fram að Skipanesi á milli kl. 17:00 – 19:00.Samkvæmt 15. kafla hollustuháttareglugerðar nr. 941/2002, er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýrið árlega. Skylt er að ormahreinsa alla hunda og ketti 4 mánaða og eldri, og nýgotnar tíkur. Skulu 3-4 vikna hvolpar spóluormahreinsaðir sérstaklega samkvæmt leiðbeiningum dýralæknis.  Gunnar Gauti Gunnarsson, dýralæknir Borgarfjarðar- og Mýrasýslu,  annast hreinsunina. Ormahreinsun hunda er innifalin í leyfisgjaldi hunda í þéttbýli og þurfa þeir sem þegar hafa greitt það gjald, ekki að greiða sérstaklega fyrir hreinsun. Annars kostar ormahreinsun hunda 1.000-4.000 kr..
Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningu (allt í einni sprautu): Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótel – hósta og hundafári á 3.000 kr. einnig ófrjósemissprautu á 2.500 -4.000 kr., örmerkingu hunda á 4.500 kr. og Perlutex ófrjósemistöflur á 2.000 kr. Ath. að greiða þarf með reiðufé.
Óskráða hunda er hægt að skrá á staðnum.
Kattareigendum stendur einnig til boða að nýta þjónustu dýralæknis.
Ormahreinsun fyrir ketti kostar 2.000-3.000 kr., ófrjósemissprauta 3.000 kr. og sprauta gegn kattarfári 3.000 kr.
Muna eftir að hafa heilsufarsbækur dýranna með.
Upplýsingar um hundahald í Hvalfjarðarsveita er að finna á vef Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is

Hundaeftirlitsmaður Hvalfjarðarsveitar.