Hunda-og kattahreinsun í Hvalfjarðarsveit 2024
Föstudaginn 25. október nk. verður lögbundin hunda- og kattahreinsun í Hvalfjarðarsveit. Hreinsunin fer fram að KALASTÖÐUM milli kl. 17:00-20:00.
Samkvæmt 15. kafla hollustuháttareglugerðar nr. 941/2002, er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýrið árlega. Skylt er að ormahreinsa alla hunda og ketti 4 mánaða og eldri, og nýgotnar tíkur. Skulu 3-4 vikna hvolpar spóluormahreinsaðir sérstaklega samkvæmt leiðbeiningum dýralæknis.
Gunnar Gauti Gunnarsson, dýralæknir annast hreinsunina.
Ormahreinsun hunda er innifalin í leyfisgjaldi hunda í þéttbýli og þurfa þeir sem þegar hafa greitt það gjald, ekki að greiða sérstaklega fyrir hreinsun.
Annars kostar ormahreinsun hunda 2.000-5.000 kr. eftir þyngd dýrsins.
Óskráða hunda er hægt að skrá á staðnum.
Ormahreinsun katta, verð kr. 2.500 – 7.000 (fer eftir þyngd)
Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar:
Smáveirusótt(Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta og hundafári, verð kr. 4.500,
Örmerking hunda og katta, verð kr. 5.000
Ófrjósemissprauta í hunda og ketti, verð kr. 3.000 -7.000 (fer eftir þyngd)
Bólusetning gegn kattafári, verð kr. 4.500
Ath. greiða þarf með reiðufé.
Muna eftir að hafa heilsufarsbækur dýranna með.
Upplýsingar um hundahald í Hvalfjarðarsveit er að finna á vef Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is