Hunda-og kattahreinsun í Hvalfjarðarsveit 2020
Miðvikudaginn 11. nóvember nk. verður lögbundin hunda- og kattahreinsun í Hvalfjarðarsveit. Hreinsunin fer fram að KALASTÖÐUM milli kl. 17:00-20:00.
Samkvæmt 15. kafla hollustuháttareglugerðar nr. 941/2002, er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýrið árlega. Skylt er að ormahreinsa alla hunda og ketti 4 mánaða og eldri, og nýgotnar tíkur. Skulu 3-4 vikna hvolpar spóluormahreinsaðir sérstaklega samkvæmt leiðbeiningum dýralæknis.
Gunnar Gauti Gunnarsson, dýralæknir í Borgarfjarðar-og Mýrasýslu, annast hreinsunina.
Ormahreinsun hunda er innifalin í leyfisgjaldi hunda í þéttbýli og þurfa þeir sem þegar hafa greitt það gjald, ekki að greiða sérstaklega fyrir hreinsun. Annars kostar ormahreinsun hunda kr. 2.000-5.000 eftir þyngd dýrsins. Óskráða hunda er hægt að skrá á staðnum.
Ormahreinsun katta, verð kr. 2.500 – 7.000 (fer eftir þyngd)
Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar:
Smáveirusótt(Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta og hundafári, verð kr. 3.000,
Örmerking hunda og katta, verð kr. 4.500
Ófrjósemissprauta í hunda og ketti, verð kr. 3.000 -7.000 (fer eftir þyngd)
Bólusetning gegn kattafári, verð kr. 4.000
Ath. greiða þarf með reiðufé
Muna eftir að hafa heilsufarsbækur dýranna með.
Upplýsingar um hundahald í Hvalfjarðarsveit er að finna á vef Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is
Vinsamlegast athugið!
Vegna hertra sóttvarnaraðgerða verður grímuskylda og biðjum við fólk að virða 2 metra fjarlægðarmörk.
Passað verður upp á fjöldatakmarkanir.
Þorvaldur Magnússon, hundaeftirlitsmaður Hvalfjarðarsveitar.
Gunnar Gauti Gunnarsson,dýralæknir.