Hjólreiðamót í Hvalfirði
20. ágúst 2020
Íslandsmótið í götuhjólreiðum 2020 fer fram sunnudaginn 23. ágúst nk. í Hvalfirði frá kl. 9:00 til kl. 14:00, lengd mótsins ræðst svolítið af veðri og vindum.
Ræsing og endamark verður frá Lambhaga sem er 2 km frá mótsstað sem er á Hótel Laxárbakka.
Stutt leiðarlýsing: Lambhagi - um Hvalfjörð - snúningspunktur við Tíðarskarð - snúningspunktur við Þingvallaafleggjara í Kjósarskarði - Lambhagi.
Vegfarendur eru beðnir um að gæta fyllstu varúðar á þessari leið meðan á mótinu stendur.
Nánari upplýsingar um mótið má sjá hér: http://hri.is/keppni/406