Fara í efni

Heiðarskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa

Heiðarskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í miðstigsteymi skólans. Leitað er að einstaklingi með góða hæfni í mannlegum samskiptum sem er reiðubúinn að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við foreldra og samstarfsfólk.

Um er að ræða 71% stöðu, vinnutími er frá kl. 8:00 – 13:30 fjóra daga í viku og kl. 8:00 – 14:10 einn dag í viku. Um tímabundna ráðningu er að ræða frá 14. ágúst til 31. desember 2024. Möguleiki á áframhaldandi ráðningu.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af vinnu með börnum er æskileg
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir, skólastjóri, í síma 433 8525 eða 896 8158. Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí nk.  Umsóknir ásamt starfsferilskrá skal senda í tölvupósti á netfang skólastjóra, sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is. Öllum umsóknum verður svarað. Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.