Fara í efni

Grænar áherslur á Grundartanga

Grænar áherslur á Grundartanga– í nýjum samstarfssamningi Faxaflóahafna sf. og Hvalfjarðarsveitar

Fulltrúar sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar og hafnarstjóri Faxaflóahafna sf. undirrituðu í dag samkomulag sem felur annars vegar í sér stefnuyfirlýsingu um „grænar áherslur í starfsemi, uppbyggingu, gatnagerð og frágang lóða á Grundartanga“ og hins vegar skýr ákvæði um sameiginleg markmið, samstarf og verkaskiptingu á athafna- og hafnarsvæðinu á Grundartanga.

Í samkomulaginu er meðal annars kveðið á um að

• við úthlutun lóða á skilgreindum iðnaðarsvæðum „verði gerðar ríkar kröfur til þess að starfsemi nýrra fyrirtækja hafi í för með sér lágmarksumhverfisáhrif“ og að starfsemin sé þar með ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

• ný fyrirtæki á iðnaðarlóðum skili Faxaflóahöfnum, Hvalfjarðarsveit og Skipulagsstofnun umhverfisskýrslu „þar sem fyrirhugaðri starfsemi er ítarlega lýst“ og á grundvelli skýrslunnar verði tekin sameiginleg ákvörðun um hvort viðkomandi fái úthlutað lóðinni.

• auka samstarf við fyrirtæki sem fyrir eru á Grundartanga „í því skyni að ná enn frekari árangri í umhverfismálum.“

• Faxaflóahafnir og Hvalfjarðarsveit eigi með sér formlega samráðsfundi um umhverfismál á Grundartanga og upplýsingamiðlun vegna fyrirtækja sem sýna lóðum á svæðinu áhuga.

Samkomulag um grænar áherslur í starfsemi, uppbyggingu, gatnagerð og frágang lóða á Grundartanga.

Yfirlitsmynd Grundartangi - Afmörkun svæðis og yfirlit lóða